-
Póllandspistill 16.
Töluverð úrkoma hefur verið hér í Poznań síðustu daga og hefur áin Warta flætt yfir bakka sína. Ekki stefnir í nein flóð, en síðustu ár hefur verið mjög lítið í ánni vegna of lítillar rigningar. Vatnsbúskapur og aðgengi að vatni var eitt af því sem var til umræðu þegar síðast var gengið til kosninga í… Continue reading
-
Póllandspistill 15.
Ég bið forláts á því hve langt hefur liðið á milli blogga, en bæði ákvað ég að halda heilög jól heima, auk þess sem að próf eru haldin eftir jól hér í Póllandi. Mér til mikillar gleði er ekki mikið um eiginleg lokapróf en þó nokkuð um magasársvaldandi lokaverkefni. Ekki hefur gefist nægilegur tíma til… Continue reading
-
Póllandspistill 14.
Ignacy Aleksander Gierymski fæddist 30. janúar 1850 í Varsjá, sem þá var þriðja stærsta borg rússneska keisaradæmisins. Þegar hann varð 18 ára gamall hóf hann nám við Listaakademíuna í München. Hann lauk þar námi árið 1872, þá 24 ára gamall og fékk við útskrift gullmedalíu fyrir góðan árangur. Næstu tvö ár bjó hann í Ítalíu,… Continue reading
-
Póllandspistill 13.
Undarlegir atburðir áttu sér stað árið 1637 í Lúblínarborg. Á þessu tíma var rekið mál fyrir dómstólum er varðaði landamerkjaágreining milli ekkju nokkurrar og stórbónda. Þó svo að ekkjan væri í fullum rétti þá bjó stórbóndinn yfir töluverðum fémunum til að halla málarekstrinum í þá hlið sem honum hentaði. Mútaði stórbóndinn dómurunum sem dæmdu í… Continue reading
-
Póllandspistill 12.
Frá því á miðnætti í gær hefur ríkt „kosningaþögn“ (pól. cisza wyborcza) í Póllandi en frá Pólverjar ganga til kosninga í dag. Kjörstaðir opnuðu klukkan 07:00 og verða opnir til 21:00 í kvöld. 29 milljónir manns eru á kjörskrá, þar af hálf milljón sem er búsett erlendis. Mikil óvissa er um vægi atkvæða erlendis, þar… Continue reading
-
Póllandspistill 11.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Austur-Póllandi á síðustu árum. Búið er að skipta út hægfara lestum fyrir fljótari, leggja fleiri brautarteina auk þess sem vegir hafa verið lagaðir. Austur-Pólland og pólska dreifbýlið hafa löngum verið helsta vígi stjórnarflokksins „Lög og réttlæti“ (pól. Prawo i Sprawiedliwość eða PiS). Hafa meðlimir flokksins, sem nú hefur… Continue reading
-
Póllandspistill 10.
Ég hef lokið prófum fyrir þessa önn og get nú loksins aftur tekið þátt í samfélagi mannanna. Í heilan mánuð fyrir próf eldaði ég engan mat, heldur róteraði ég pítsum, forelduðum kjúkling og pierogi sem ég setti í ofninn. Fyrirhafnarlaust sem og gleðilaust. Eftir að ég var búinn með munnlega prófið sem ég náði þökk… Continue reading
-
Póllandspistill 9.
Ég byrja á því að biðjast forláts. Ég hef ekki verið jafn duglegur og ég ætlaði mér en oft þegar ég hugsa um hvað ég vilji skrifa fallast mér hendur því það er frá svo mörgu að segja þegar það kemur að Póllandi. Mig langar til að byrja á því að bjóða ykkur í stuttan… Continue reading
-
Póllandspistill 8.
Ef farið er til Vilníusar, höfuðborgar Litháens, er hægt að fara til þorps sem liggur um 28 km. vestan við hana sem heitir Trakai. Þorpið er fámennt en þar búa rétt rúmlega 5.000 manns. Árið 1857 fæddist þar hjónunum Azariaszi og Maríu Kobecki sonur sem fékk nafnið Szymon. Hann hóf nám grunnskólanum þar 10 ára… Continue reading
-
Póllandspistill 7.
Einu sinni voru karl og kerling sem hétu Hirsz og Gitel Rubinstein. Þau voru gyðingar og bjuggu í Podgórze sem þá var borg suður af Kraká. Í desembermánuði árið 1872 eignuðust þau stúlku sem fékk nafnið Chaja. Stuttu seinna flutti litla fjölskyldan til Krakár í gyðingahverfið sem hét og heitir Kazimierz. Þau eignuðust 11 börn… Continue reading