• Póllandspistill 6.

    Síðasta sunnudag ákváðum við Karol vinur minn að hittast á kaffihúsinu Kahawa hér í Poznań. Karol er með BA gráðu í ungversku og var byrjaður að læra tékknesku áður en að hann flutti til Poznań til að hefja nýtt BA nám í nytjamálfræði og þvermenningarlegum samskiptum. Nytjamálfræði er lík hefðbundnu málfræðinámi að því leytinu til… Continue reading

  • Póllandspistill 5.

    „Kölski – eins og vitað er – var ekki sérstaklega hrifinn af kirkjum og vildi gjarnan sjá þær eyðilagðar. Þegar svo bar til, að kirkja hrundi eða stóð í ljósum logum, var talið víst að Kölski værið sökudólgurinn. Einu sinni, fyrir langa löngu, þegar verið var að byggja eina af mörgum kirkjum Wrocław varð Kölska… Continue reading

  • Póllandspistill 4.

    13. mars 1926 dó maður af nafni Florian Biesik í borginni Trieste á Ítalíu. Florian Biesik var þó ekki ítalskur. Hann fæddist í 4. mars 1850 í þorpinu Wilamowice, sem er í dag á milli héraða sem heita Litla-Pólland og Slesía í Suður-Póllandi. Héraðið sem Wilamowice er í var lengi vel kallað Galísja og tilheyrði… Continue reading

  • Póllandspistill 3.

    Árið 1910 fæddist í smábænum Gąbin fæddist stúlka sem fékk nafnið Rejzl Żychlińska. Foreldrar hennar voru gyðingar. Hún kláraði þar grunnskólanám en þar stúlkum stóð ekki frekari uppfræðsla til boða juku foreldrar hennar við menntun hennar með því að ráða einkakennara handa henni. Hún orti ljóð bæði á pólsku og jiddísku sem var það mál… Continue reading

  • Enginn veit neitt.

    Eitt og annað, m.a. um vorðboðamorð. Árið 1947 leikstýrði tékkneski leikstjórinn Josef Mach myndinni „Nikdo nic neví“, sem íslenska mætti sem „Enginn veit neitt“. Um er að ræða gamanmynd sem á sér stað í seinni heimstyrjöldinni. Hefst myndin á því að verkfræðingur að nafni Bureš tekst að komast undan nasistum með því að flýja yfir… Continue reading

  • Rittregða.

    Ég vildi gjarnan getað kennt tímaleysi um bloggskort en sökin er alíslenskt „nennis“. Venjan hefur verið hingað til sú að þegar ég flyt erlendis að þá held ég blogg. Í bæði skiptin sem ég bjó í Rússlandi þá skrifaði ég um það og líka þegar ég bjó í Kína – allavega í þessa örfáu mánuði… Continue reading